Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar. Ráðningar og pöntunarsími 862-1403 netfang frjo@simnet.is |
|
Færslur: 2015 Október27.10.2015 22:55Slægjuball, Bændahátíð og 20 ára afmæliÞað verða magnaðar helgar á næstunni þ.e. 31. okt og 7. nov. þann 31 er hið árlega Slægjuball í Skjólbrekku Mývatnssveit þar sem ungir sem aldnir koma saman og skemmta sér. Þar er mjög athyglisvert á sjá hversu yngra fólkið er öflugt í dansinum, enda hefur dansinum verið sinnt bæði í skólakerfinu og annarsstaðar í samfélaginu. Þann 7. nov er síðan hin árlega Bændahátíð í Valaskjálf á Egilsstöðum og jafnhliða því heldur hljómsveitin upp á 20 ára afmælið, en sveitn var stofnuð í okt 1995 og hefur starfað nær óbreytt síðan. Á þessum 20 árum hefur hljómsveitin spilað á 107 samkomustöðum á landinu, í öllum landshlutum. Einnig hefur Danshljómsveit Friðjóns komið að útgáfu 50 laga á þessu tímabili, en tilgangur þessarar útgáfustarfsemi er og hefur verið að varðveita lög og/eða texta austfirskra höfunda að lang mestu. Skrifað af Friðjón Jóhannsson
Flettingar í dag: 29 Gestir í dag: 13 Flettingar í gær: 10 Gestir í gær: 7 Samtals flettingar: 122996 Samtals gestir: 44425 Tölur uppfærðar: 2.3.2021 16:46:43 |
Eldra efni Tenglar |
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is